„Þeir vilja komast yfir jarðirnar okkar en umfram allt vilja þeir þagga niður í okkur,“ segir Moira Millán, argentínsk baráttukona, um baráttu sína við argentínska ríkið um landsvæði í Patagoniu í suðurhluta Argentínu. Moira tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í þessum hluta landsins. Hún var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fram fór í Háskóla Íslands og ræddi meðal annars um þessa baráttu sína.Moira segir í viðtali við fréttastofu að argentínska ríkið vilji losna við Mapuche-frumbyggjana af því að yfirvöld í landinu vilji hleypa fyrirtækjum í auknum mæli í náttúruauðlindirnar sem er að finna í Patagoniu. Meðal annars er þar að finna vatnsbirgðir, olíu og gas. Moira er sérstaklega gagnrýnin á núveran