Eyðilegging af völdum stríðsátaka metin á rúman milljarð dollara

Alls hafa 11.095 hús verið gjöreyðilögð í stríði Ísraela og Hezbollah í suður Líbanon síðustu mánuði. Þetta er niðurstaða rannsóknar á vegum Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna og þjóðarráðs vísindarannsókna í Líbanon.Þá hafa 2.242 hús skemmst að hluta og 9.311 hafa orðið fyrir minniháttar skemmdum.Alls er tjónið metið á um 1,38 milljarða dollara. Tjónið er metið út frá gervihnattamyndum sem teknar voru í lok apríl og bornar saman við gervihnattamyndir frá október á síðasta ári. Tjónið gæti verið enn meira þar sem myndirnar sýna ekki það tjón sem orðið hefur eftir lok apríl og fram til dagsins í dag.Átök milli Ísraela og Hezbollah hófust 2. mars. Samið var um vopnahlé 17. apríl sem hefur ekki verið virt. Samkvæmt stjórnvöldum í Líbanon hafa yfir 4.100 verið drepnir í átökunum í Líbanon og y
Eyðilegging af völdum stríðsátaka metin á rúman milljarð dollara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd