Á þessum degi, 22. júní, fyrir 40 árum fór fram einhver umtalaðasti leikur í sögu heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Argentínska undrabarnið Diego Armando Maradona sendi þá Englendinga heim með því að skora bæði mörkin í 2:1-sigri og gerði auðvitað allt vitlaust í leiðinni. Eins og hans var stundum háttur.