Skólagjöld tekin upp fyrir nemendur utan EES

Nemendur búsettir utan EES-svæðisins þurfa að borga full skólagjöld frá og með næsta ári. Rektor Háskóla Íslands býst við töluverðri fækkun umsókna.Alþingi samþykkti á lokametrunum frumvarp sem heimilar opinberum háskólum að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES-svæðisins, að Færeyjum, Grænlandi og Sviss undanskildum. Með þessu á að hagræða þar sem ríkið mun ekki lengur standa undir kostnaði við nám þessara nemenda og um leið samræma reglur við önnur Norðurlönd.Danir tóku upp skólagjöld fyrir nemendur utan EES árið 2005, Svíþjóð árið 2011, Finnland 2017 og Noregur 2023.Í greinargerð frumvarpsins er bent á að hlutfall nemenda frá löndum utan EES sé mun hærra hér en á öðrum Norðurlöndum. Árið 2021 voru umsóknir í Háskóla Íslands tæplega 1200 en voru tæplega 2.600 í fyrra. Þessa miklu auk
Skólagjöld tekin upp fyrir nemendur utan EES

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd