Ánægja með fækkun lögregluembætta í landinu

Dómsmálaráðherra og hennar fólk í ráðuneytinu kom á Selfoss og hitti Grím Hergeirsson, lögreglustjóra á Suðurlandi og lögreglumenn embættisins.„Ég er að tala við alla lögreglumenn í landinu til þess að ræða við þá um skipulagsbreytingar. Við ætlum að fækka lögregluembættum í landinu þannig að þau verði stærri og sterkari og lögreglan geti náð enn þá betri árangri í sínum störfum heldur en í dag er,” segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.Hvað erum við að horfa á mikla fækkun?„Við erum að horfa til þess að embættin verði svona fjögur eða fimm talsins,” segir Þorbjörg.Í dag eru lögregluembættin níu og þetta er því heilmikil fækkun embætta. En mun það veikja lögregluna eða efla hana?„Þetta mun hiklaust efla hana. Við erum ekki að fækka starfsstöðum lögreglunnar hringinn í kr
Ánægja með fækkun lögregluembætta í landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd