Mikil hitabylgja geisar í Evrópu lífið og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi.