„Nú er að nálgast okkur lægðardrag úr suðri og því fylgir úrkomusvæði sem kemur inn yfir Suðurland einhvern tímann í fyrramálið og svo á suðvesturhornið, og þar af leiðandi höfuðborgarsvæðið, einhvern tímann síðdegis og þá fer að rigna, meðal annars í borginni,“ segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur við mbl.is.