Rúmur helmingur Reykvíkinga hefði verið óánægður ef Hildur Björnsdóttir hefði valið að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Væntingar til Hildar sem borgarstjóra eru þónokkrar en liðlega helmingur hefur fremur miklar eða mjög miklar til hennar. Hildur leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum.