Skemmdir eftir utanvegaakstur ferðamanna á hálendinu um helgina eru með því versta sem sést hefur að sögn landvarða í Hrauneyjum.Þeir komu fyrir tilviljun auga á mennina í gær og gerðu lögreglu viðvart.Leiðsögumaður vill að bílar ferðamanna, sem verða uppvísir að utanvegaakstri, verði gerðir upptækir og vill harðari viðurlög. KOMU FYRIR TILVILJUN AUGA Á BÍLA FERÐAMANNANA NÆRRI HRAUNEYJUM Sólborg Birgisdóttir, yfirlandvörður í Hrauneyjum, og Helga Mattína, landvörður í Hrauneyjum, höfðu fengið upplýsingar frá samstarfsfólki um utanvegaakstur ferðamannana.Þær höfðu fengið veður af því að mennirnir væru hugsanlega á leið í Landmannalaugar. Þegar þær voru sjálfar á ferð á svæðinu í gær komu þær, fyrir tilviljun, auga á bíla mannanna.„Þeir voru líklegast þá á leiðinni inn á Fjallabak, inn á