„Ég er ótrúlega heppin. Ef ég þarf að velja á milli brotinna úlnliða og áverka á höfði, höfuðkúpu eða hálsi, þá tek ég brotna úlnliði í hvert einasta skipti," segir Makayla Soll, bandarískur leikmaður KR, í samtali við Fótbolta.net eftir alvarlegt slys sem varð í leik FHL og KR í Fjarðabyggðarhöllinni þann 14. júní síðastliðinn.