Tónlistarstjórinn og goðsögnin Clive Davis er látinn. Hann var 94 ára gamall. Davis uppgötvaði marga af helstu tónlistarmönnum 20. aldarinnar og stjórnaði fjölda útgáfufyrirtækja. SPOR Í MENNINGUNNI SEM VARA KYNSLÓÐUM SAMAN Davis lést á heimili sínu samkvæmt yfirlýsingu frá fjölskyldu hans en hann hafði nýlega verið lagður inn á sjúkrahús vegna öndunarerfiðleika.„Fyrir heiminum var faðir okkar tónlistargoðsögn. Framtíðarsýn hans, eðlishvöt og óþreytandi leit að því besta mótuðu hljóðrásir ótal mannslífa. Hann uppgötvaði, leiðbeindi og barðist fyrir fremstu listamönnum nútímatónlistarsögunnar og skildi eftir sig óafmáanleg spor í menningunni sem vara kynslóðum saman.“Í augum fjölskyldunnar hafi hann verið faðir og afi og stöðug nærvera í lífi ættingja, uppspretta visku, styrks, hvatninga