Loftrýmisgæsla eða Air Policing er hugtak sem fæstir Íslendingar þekktu fyrir tuttugu árum, þegar Bandaríkjaher pakkaði saman og fór frá Íslandi. Stjórnvöld hér á landi voru hörð á því að NATO yrði að sinna eftirliti með íslenskri lofthelgi og úr varð að hingað komu af og til flughersveitir í loftrýmisgæslu.Svipuð gæsla fer fram víðar og í fyrra var mikið að gera.Herþotur voru sendar yfir 500 sinum á móti ótilgreindum flugförum, samkvæmt yfirliti frá NATO. Árið áður voru tilvikin 400 og 2023, 300.Flest tilvikin eru yfir Eystrasalti þar sem rússneskar hervélar og drónar virðast með skipulögðum hætti hafa verið send af stað til þess eins að kanna viðbrögðin.Dönsk hermálayfirvöld birta sundurliðun atvika og tölur þeirra staðfesta þetta: Flest tilvikin sem danski flugherinn bregst við eru yfir