Kjaraviðræðum Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands lauk í dag, án árangurs. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélagsins, í samtali við fréttastofu. Mbl.is greindi fyrst frá.Óskar segir félagið nú þurfa að ákveða hvert framhaldið verður. Hann getur ekki gefið upp hvort von sé á því að félagið boði verkfallsaðgerðir á næstunni.Í könnun sem gerð var meðal flugvirkja í síðustu viku sögðust 70% svarenda vera hlynnt verkfallsaðgerðum. Flugvirkjar hafa verið samningslausir í sjö mánuði.