Greiningum á myglu í atvinnuhúsnæði fer ekki fjölgandi að sögn Sylgju Daggar Sigurjónsdóttur, líf- og lýðheilsufræðings hjá Verkvist. Það sem eykst er þekking á innivist, rakaskemmdum og myglu og hvað eru óheilnæmar vinnuaðstæður. Þörf er á samræmdum leiðbeiningum um úttektir á húsnæði og á meðan þær skortir eru heldur ekki til samræmdar tillögur um hvernig eigi að bregðast við og bæta úr.„ Ég hef ekki séð beina aukningu. Þetta hefur bara því miður verið alltof algengt og alltof lengi. Það er kominn tími til að við skoðum þessi mál alvarlega og finnum einhverjar lausnir fyrir fólk í þessari stöðu því það er ömurleg staða að vera fullfrískur til vinnu en bara ekki á þeim vinnustað sem er í boði,“ segir Sylgja Dögg. RÉTTINDI STARFSFÓLKS ERU ÓLJÓS Réttindi starfsfólks sem veikist sökum myg