Lyngby að kaupa Daníel Frey

Daníel Freyr Kristjánsson er að ganga í raðir Lyngby frá Midtjylland. Danskir miðlar greina frá tíðindunum og segja að hann muni klára læknisskoðun síðar í dag. Daníel, sem er tvítugur vinstri bakvörður uppalinn í Stjörnunni, skrifaði í fyrra undir langtímasamning við Midtjylland til ársins 2030 og því ljóst að Lyngby þarf að greiða fyrir leikmanninn. Hann hefur leikið með Fredericia undanfarin tvö tímabil. Fyrra tímabilið lék liðið í fyrstu deild í Danmörku og tryggði sig upp í Superligaen. Á nýafstöðnu tímabili spilaði Daníel 16 leiki í Superligaen og byrjaði hann þrettán þeirra.
Lyngby að kaupa Daníel Frey

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd