Ríflega níu af hverju tíu aðspurðum í nýrri könnun í Ísrael segja að Íran hafi borið sigur úr býtum í stríðinu þar. Yfir 3.500 manns svöruðu könnun sem hebreski háskólinn í Jerúsalem gerði dagana 17.–20 júní og niðurstöðurnar voru afgerandi. Meira að segja meðal stuðningsmanna hægristjórnar Benjamíns Netanjahús voru yfir 93% á því að Íran hefði unnið, 83% sögðu stríðið hafa veikt varnir Ísraels, 72,5% sögðust ekki trúa Netanjahú þegar hann fullyrti að helstu markmiðum hefði verið náð og 56% gáfu honum sjálfum falleinkum fyrir framgöngu sína.Það vekur athygli að 48 prósent sögðust samt styðja áframhaldandi hernaðaraðgerðir gegn Hezbollah í Beirút, jafnvel þótt það vekti reiði Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. 21% var því andsnúið.Könnun CBS og Yougov í Bandaríkjunum, sem birt var í gær, ben