Oddviti sjálfkjörins lista ráðin sveitarstjóri

Íris Edda Jónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Vopnafjarðarhreppi. Hún var oddviti sjálfkjörna framboðsins Sterkrar stoðar.Íris Edda var ráðin staðgengill sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps í febrúar en hafði fram að því verið verkefnastjóri stjórnsýslu. Þá höfðu orðið nokkrar sviptingar í bæjarmálunum, sveitarstjóri og oddviti sveitarstjórnar sögðu af sér.Íris Edda leiddi lista Sterkrar stoðar, eina framboðsins til sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi, sem var þar með sjálfkjörið. Nú hefur sú sjálfkjörna sveitarstjórn gengið frá ráðningu hennar í starf sveitarstjóra. Hún tekur undir að staðan sé óvenjuleg.„Við lendum ekki oft í því að það verði sjálfkjörið. Ég lít kannski meira á það sem faglegt en pólitískt, sjálft starfið. En jú vissulega kannski óvenjuleg staða.“Nú hafði minnihlu
Oddviti sjálfkjörins lista ráðin sveitarstjóri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd