Lífeyrir ríkisstarfsmanna hefur lækkað um tíu prósent að meðaltali eftir breytingar á árunum 2016 og 2017, segir Gylfi Magnússon, prófessor og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.Breytingarnar gengu í grundvallaratriðum út á að skipta úr skilgreindum réttindum í skilgreind iðgjöld. Fyrir breytingarnar gátu opinberir starfsmenn treyst á tilgreind réttindi óháð því hvernig lífeyrissjóðnum gekk. Eftir breytingarnar ábyrgist ríkið ekki neitt nema að greiða iðgjöld sem launagreiðandi.Ríkisábyrgð á lífeyri var þannig afnumin og kerfið gert sambærilegt því sem þekkist á almennum markaði. Skilgreind iðgjöld eða skilgreind réttindi Þegar lífeyrissjóður er í kerfi sem byggir á skilgreindum iðgjöldum ábyrgist launagreiðandi ekki neitt nema að greiða iðgjöld inn í sjóðinn. Lífeyrisgreiðslur far