Fyrr í vor hreiðruðu þrestir um sig á pallinum hjá Snorra Stefánssyni, íbúa í Garðabæ. Þegar Snorri varð var við hreiðurgerðina ákvað hann að setja upp myndavél þar sem hann og fjölskyldan gátu fylgst með þröstunum.Snorri, sem flutti í húsið nýlega, segir fyrri eiganda hafa sagt við fjölskylduna að á pallinum hefði áður verið starrahreiður.Eigandinn hafi prófað að fjarlægja hreiðrið en við það hafi fuglinn snúið aftur brjálaður. Því hafi Snorri og fjölskylda leyft hreiðrinu að vera og síðan tekið eftir því að þangað fóru þrestir að venja komu sína.„Ég setti myndavélina upp áður en fyrsta eggið kom því við vorum svo hissa. Við höfum aldrei séð þetta ferli áður frá upphafi til enda,“ segir Snorri.Snorri segir ungana byrjaða að ýta sér upp úr hreiðrinu. Þá reyni fjölskyldan að trufla þrestina