U19 landsliðsmaðurinn Gunnar Orri Olsen hefur verið færður upp í aðallið FC Kaupmannahafnar og mun æfa með liðinu á undirbúningstímabilinu sem hófst í gær og var fyrsta æfing utandyra í dag. Hann er einn af sex úr akademíunni sem mun æfa með aðalliðinu þar til U19 liðið byrjar að æfa seinna í sumar. Gunnar Orri er fæddur árið 2008 og hefur verið í unglingaliðum danska stórliðsins síðustu ár. Kantmaðurinn vann tvennuna með U19 liði FCK á liðnu tímabili; deildina og bikarinn og var valinn maður leiksins í bikarúrslitaleiknum.