Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri á Bíladögum um helgina. Átta líkamsárásir voru tilkynntar, þar af þrjár alvarlegar, og nokkrir gistu fangageymslur. Þá komu upp fjögur fíkniefnamál og töluvert var um að umferðarlög væru brotin. Lögregluvarðstjóri segir að þetta séu talsvert fleiri brot en á Bíladögum síðustu ár.„Samanborið við fyrri ár segir mín tilfinning mér að það var svona ívið meira að gera. Það er alltaf erilsamt í kringum Bíladaga. Það er samt ekki bara tengt Bíladögum, það eru margir viðburðir í gangi,“ segir Heimir Heiðarsson, lögregluvarðstjóri á Akureyri. Hann vísar þar til háskólahátíðar og brautskráningar í Háskólanum á Akureyri, reiðhjólamóta sem voru í bænum og þess að ferðamannasumarið sé að nálgast hámark og margir gestir hafi sótt bæinn heim. ÍBÚAR MISÁNÆGÐIR