Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps undir Höfðatorgi

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur mönnum fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Brotaþoli fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur.Í ákærunni er einum mannanna gefið að sök að hafa ekið Land Rover-bifreið á manninn á mikilli ferð, öðrum að hafa barið hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi, og hinum þriðja að hafa stungið manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni.Í ákærunni segir að brotaþoli hafi verið settur í lífshættulegt ástand, hlotið sár í húðberi vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á upphandleggsbeini, mar, bólgur, fleiðusár og eymsli.Mennirnir sem eru ákærðir eru allir erlendir ríkisborgarar á þrítugsaldri. Sá sem varð fyrir árásinni er Íslendingur á þrítugsaldri.
Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps undir Höfðatorgi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd