Þrír karlmenn, fæddir á árunum 1998 til 2002, hafa verið ákærðir fyrir tilraun til manndráps. Sakborningarnir, sem bera allir arabísk nöfn, eru sakaðir um að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 17. mars, í bílakjallara við Þórunnartún í Reykjavík, reynt að svipta mann lífi. Einn sakborningurinn, Kareem M. M. Abufarhah, er í ákæru héraðssakóknara sagður hafa ekið Land Rover bíl á mikilli ferð á brotaþola, þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bílsins of féll í jörðina.