„Við höldum þetta sumarsólstöðublót alltaf hérna á Múla í Álftafirði af því að hér býr fjölskylda sem er í okkar félagi,“ segir Baldur Pálsson Freysgoði í samtali við Morgunblaðið um sumarsólstöðublót sem Ásatrúarfélagið hélt víða um land í gær þar sem blótað var að heiðnum sið.