Um 26% líkur eru á því að Portúgal nær betri árangri en Argentína á yfirstandandi heimsmeistaramóti samkvæmt tölfræðilíkani Metils. Þar af leiðandi eru 26% líkur á að Albert Brynjar Ingason fái símanúmerið hjá Messi. Albert og Eiður Smári Guðjohnsen gerðu eftirminnilegt veðmál í HM kvöldi á Rúv í síðustu viku um hvort liðið kæmist lengra og var símanúmer Messi undir.