Keir Starmer hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Hann tilkynnti þetta á blaðamannafundi fyrir utan Downingsstræti 10 nú í morgun. Hefur hann tilkynnt þetta Karli Bretakonungi og hefur falið stjórn Verkamannaflokksins að hefja nýtt leiðtogaval. Heitir hann nýjum formanni fullan stuðning, sagði hann í ávarpi sínu að nýr leiðtogi tæki við mun sterkara og jafnara Bretlandi en hann gerði fyrir tveimur árum.Sjá frétt: Er tími Andy Burnham runninn upp?