Hæg suðlæg átt með smáskúrum

Það er útlit fyrir hæglætisveður víðast hvar á landinu, þó með skúrum, í dag og næstu daga. Hiti nær allt að 18 stigum á morgun, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Í dag má búast við fremur hægri suðlægri eða breytilegri átt. Skúraleiðingar um mestallt land og hiti yfirleitt 8 til 15 stig.Á morgun, þriðjudag, er útlit fyrir austan strekking syðst á landinu, en hægari vind annars staðar. Skýjað og skúrir á stöku stað, en dálítil rigning syðst og einnig suðvestantil um kvöldið. Hiti breytist ekki mikið, kemst þó líklega í 16 til 18 stig á Norður- og Vesturlandi þegar best lætur.Á miðvikudag er svo útlit fyrir suðlægar áttir og fremur vætusamt um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi og einna hlýjast á þeim slóðum.
Hæg suðlæg átt með smáskúrum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd