54 eru slasaðir og 18 er saknað eftir sprengingu í verksmiðju í iðnaðarborginni Ras Laffan í Katar í gær. Samkvæmt innanríkisráðuneytinu í Katar er talið að tæknileg mistök hafi orsakað sprenginguna.Sprengingin er sögð hafa verið mikil og lýsti upp næturhimininn samkvæmt blaðamanni AFP fréttaveitunnar. Hann var staddur í 20 kílómetra fjarlægð frá verksmiðjunni og varð vitni að sprengingunni.Katar er einn helsti framleiðandi heims á fljótandi jarðgasi. Ras Laffan varð fyrir miklum árásum Írana í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Árásirnar beindust meðal annars að orkuinnviðum í borginni. Framleiðsla á fljótandi jarðgasi stöðvaðist 2. mars þegar Íranar gerðu drónaárásir á mikilvæga orkuinnviði.18. mars gerðu Íranar aðrar árásir sem einnig ollu miklu tjóni. Orkumálaráðherra Katar sagði þá að útflu