Fundu 2,7 tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgjum í Sydney

Ástralska lögreglan gerði upptæk 2,7 tonn af kókaíni á föstudag sem voru falin í neðanjarðarbyrgjum í Londonderry, úthverfi Sydney. Efnunum hafði verið komið fyrir undir fölskum gólfum í þremur flutningagámum.Samkvæmt breska ríkisútvarpinu er þetta mesta magn fíkniefna sem ástralska lögreglan hefur lagt hald á í einni lögregluaðgerð.Götuverðmæti fíkniefnanna eru metin á um 816 milljónir ástralskra dollara eða tæpa 72 milljarða íslenskra króna. Lögreglan segir að efninu hafi verið smyglað til Ástralíu um smábæinn Midge Point í norður Queensland af skipulögðum glæpahópum.Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir á vettvangi þar sem efnin fundust. Þeir eiga yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi verði þeir fundir sekir um að eiga efnin. Þá hafa 6 aðrir verið handteknir í tengslum við málið.
Fundu 2,7 tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgjum í Sydney

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd