Skjálftinn varð 3,8 km suðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg.Veðurstofa ÍslandsJarðskjálfti af stærðinni 3,1 varð klukkan 01:49 í nótt á Reykjaneshrygg. Skjálftinn varð 3,8 km suðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg.Skjálftar af þessari stærðargráðu eru mjög algengir á svæðinu, samkvæmt athugasemd vakthafandi jarðvísindamanns á Veðurstofu Íslands. Síðast mældist skjálfti yfir þremur að stærð á þessum stað þann 2. júní síðastliðinn.Þá varð einnig skjálfti á Reykjaneshrygg aðfaranótt laugardags. Sá skjálfti var 2,9 að stærð og átti upptök sín 5,8 km norðnorðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg.