Lögreglunni á Suðurlandi tókst að hafa hendur í hári erlendra ferðamanna í gærkvöldi sem staðnir voru að miklum utanvegaakstri um helgina. Þeir fengu sekt upp á fleiri hundruð þúsund og hefur sektin verið gerð upp, samkvæmt Þorsteini M. Kristinssyni, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi.Ferðamennirnir óku um á tveimur Land Rover-jeppum og sást til utanvegaaksturs þeirra víða á hálendinu um helgina. Þeir eru sagði hafa spænt upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.Upphæð sekta fyrir utanvegaakstur er matsatriði og fer eftir umfangi hverju sinni. „Lægstu sektirnar eru fyrir lítilsháttar gáleysisutanvegaakstur. Stórfelldur, ljótur utanvegaakstur getur verið metinn á hundruð þúsunda. Það skiptir máli hvort þetta sé á viðkvæmu svæði, náttúruverndarsvæði og h