Víkingar völtuðu yfir Fram

Karl Friðleifur Gunnarsson.Mummi LúVíkingur Reykjavík er hreinlega óstöðvandi í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið vann Fram 0-5 í Úlfarsárdal.Elías Már Ómarsson skoraði þrennu og er markahæstur í deildinni með 12 mörk. Víkingur hefur unnið 11 leiki af 12 og gert eitt jafntefli. Liðið er með 9 stiga forskot á KR sem er í 2. sæti. Fram er í 3. sæti með 23 stig en liðið hafði ekki mátt þola tap í síðustu 7 leikjum.Aron Elís Þrándarson kom Víkingum á bragðið á 32. mínútu. Elías Már Ómarsson skoraði svo rétt fyrir hálfleik. Hann fullkomnaði svo þrennu sína með mörkum á 51. og 65. mínútu. Helgi Guðjónsson stráði svo salti í sár Framara með marki úr vítaspyrnu á 79. mínútu.
Víkingar völtuðu yfir Fram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd