Gjörólíkir frambjóðendur keppast um forsetaembættið í Kólumbíu í seinni umferð kosninga í dag. Annar vill semja við glæpahópa um að leggja niður vopn. Hinn vill taka hart á þeim og byggja tíu öryggisfangelsi.Talið er að mjótt verði á munum milli þeirra Ivan Cepeda og Abelardo de la Espriella. Sá síðarnefndi er þó með aðeins meira fylgi, samkvæmt könnunum. Glæpatíðni í landinu hefur aukist og öryggisgæslan á kjördag er mikil.De la Espriella er nýliði í stjórnmálum og á hægri á ás stjórnmálanna. Hann kallar sig tígurinn og vill hætta viðræðum við vopnaða hópa og senda herinn gegn þeim. Þá heitir hann því að byggja tíu öryggisfangelsi í frumskóginum. Í öryggisskyni er hann á bak við skothelt gler á kosningafundum.Seinni umferð forsetakosninga í Kólumbíu var í dag. Frambjóðendurnir tveir þykja