Nýtt íslenskt fyrirtæki hyggst færa almenningi aðgang að afsláttarkjörum á húsnæðismarkaði sem hafa aðallega verið á færi fjárfesta og stærri kaupenda. Íbúðakaupendur sameinast um fjöldakaup og fá þannig hópafslátt.Halldór Kristján Sigurðsson, eigandi Fjöldakaupa, segir þetta minna á hin gömlu hópkaupstilboð.„Þeir sem eldri eru muna kannski eftir hópkaupstilboðum á sjónvörpum. Fjöldakaupstilboðin virkjast þegar X margar íbúðir eru seldar. Það er hugmyndafræðin. Því fleiri íbúðir því betra verð.“ NÝ LEIÐ Á ÍSLANDI EN ÞEKKIST ERLENDIS Þessi leið er ný í fasteignaviðskiptum hér á landi en þekkist annars staðar. Kaupendur skrá sig á vefsíðu fyrirtækisins, setja þar inn verðflokk sem hentar og óskastaðsetningu. Fasteignasalinn semur svo við verktaka um magn og verð. Þegar gengið hefur verið