Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði Írönum enn harðari árásum en áður á meðan á samningafundi sendinefnda ríkjanna stóð í Sviss í dag. Viðræðurnar þóttu ganga vel og Íranar segjast ætla að halda þeim áfram þrátt fyrir hótanir Trumps.Bandaríkin og Íran hafa gefið sér sextíu daga til að skipuleggja útfærslu á samkomulagi til að leysa deilumál ríkjanna eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar. Samkomulagið felur í sér að bardögum verði hætt á „öllum vígstöðvum“, þar á meðal í Líbanon, og að Hormússund verði opnað aftur. Fulltrúar stjórnvalda í Pakistan og Katar miðluðu málum.Eitt helsta bitbeinið í viðræðunum hefur verið árásir Ísraelshers á Líbanon. Varaforseti Bandaríkjanna sagði að þokast hefði í þá átt að tryggja vopnahlé þar. Einnig er rætt um opnun Hormússunds en Í