Myndband sem virðist sýna tvær konur fremja býsna bíræfinn vasaþjófnað við Gullfoss fyrir skömmu er nú í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum, aðallega Facebook. Myndbandið birtist fyrst í Facebook-hópnum „Bakland ferðaþjónustunnar“ en meðlimir í hópnum „Hjóladót...“ hafa nú deilt myndbandinu um þúsund sinnum, hinum meintu þjófum til smánunar. Í umræðum í Baklandinu halda sumir því fram að atvikið sé sviðsett en flestir eru þó á því að um ósvífinn þjófnað hafi verið að ræða.