„Hvalveiðar eru eitthvað sem öll ríki heims, utan við þrjú, fordæma og mér finnst mjög sorglegt að við ætlum að vera ein af þessum þremur sem halda áfram vegna þess að einn maður ákveður að hann vilji það. Það hlýtur að vera að ríkisstjórn Íslands hafi meiri völd heldur en Kristján Loftsson.“Þetta segir Valgerður Árnadóttir, formaður Hvalavina - Verndar hafsins. Samtökin skipulögðu mótmæli gegn hvalveiðum við Reykjavíkurhöfn í dag, ásamt Ungum umhverfissinnum, Náttúruverndarsamtökum Íslands, Samtökum grænkera og SEED Iceland.Formaður Hvalavina segir ekki forsvaranlegt að drepa dýr á ómannúðlegan máta eins og gert er við hvalveiðar. Dauðastríðið geti tekið margar klukkustundir.„Þess vegna er þetta bara brot á okkar lögum og ég tel að ríkisstjórnin beri ábyrgð á að stöðva þetta. Það er þeirr