Áætlað er að skera fjárveitingar til framhaldsskóla niður um 7,1% á næstu árum. Fjárhagsstaða skólanna hefur verið þröng og af 27 ríkisreknum framhaldsskólum voru 22 reknir með halla árið 2024. Samanlagt eigið fé allra framhaldsskóla var jákvætt um tæpan milljarð 2019 en neikvætt um rúman milljarð 2024. Staðan batnaði 2025 þegar skólarnir fengu viðbótarfé á aukafjárlögum.„Þetta er bara kyrkingartak sem er verið að setja á framhaldsskóla í landinu núna, að þeir eigi að spara upphæðir sem við höfum ekki séð áður, ekki einu sinni eftir hrunið. Þarna er verið að skafa innan úr skólunum, við erum að taka sálina úr skólunum,“ segir Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara. SAMEINING ÓLÍKLEG Guðjóni þykir ólíklegt að framhaldsskólar verði sameinaðir. Tillögur þar um fengu