Bragi Þór Thoroddsen verður sveitarstjóri Fljótsdalshrepps

Bragi Þór Thoroddsen hefur verið ráðinn sveitarstjóri Fljótsdalshrepps. Hann hefur störf í byrjun ágúst. Þetta segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.Bragi hefur verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps undanfarin sjö ár. Hann er lögfræðingur að mennt, er varaþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi og var formaður samgönguráðs síðasta hálfa árið.Hann er fæddur árið Reykjavík en uppalinn á Patreksfirði. Bragi er giftur Selmu Guðmundsdóttur og á þrjú uppkomin börn. Hann hefur verið virkur í bæjarpólitík í Kópavogi og tók að sér nefndarstörf árin eftir að hann lauk námi. Starfaði hann sem lögfræðingur, fyrst hjá Sjúkratryggingum og síðar hjá Útlendingastofnun.
Bragi Þór Thoroddsen verður sveitarstjóri Fljótsdalshrepps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd