Hjörtur Magni Jóhannsson, sóknarprestur í Fríkirkjunni, gaf fimm pör saman í gær. Hann rekur fjöldann til dagsetningarinnar í gær - 20.06.2026.„Það virðist vera og líka 06.06.2026 þá var fjöldi athafna bæði skírnir og brúðkaup. Fólk virðist vera að festa sig svolítið í þessum tölum, þessum tímasetningum og það er bara ánægjulegt og gaman, en svolítið sérstakt.“ BÓKA JAFNVEL ÞRJÚ ÁR FRAM Í TÍMANN Hann segir suma jafnvel hafa bókað dagsetningar tvö til þrjú ár fram í tímann. Söfnuðurinn hafi stækkað mikið á undanförnum árum og því jafnvel dæmi um að fólk komist ekki að á eftirsóttum dagsetningum.„Á tveimur, þremur árum getur nátturlega ýmislegt gerst og fólk fer í sundur eða saman. En já nokkrar þeirra eru bókanir mörg ár fram í tímann og það er bara virkilega gleðilegt og ánægjulegt.“Han