Offita á miðjum aldri getur valdið alzheimer-breytingum í heilanum seinna á ævinni. Þetta segja niðurstöður nýrrar norskrar rannsóknar.Rannsakendur telja að aðgerðir sem draga úr offitu meðal almennings geti orðið mikilvægar til að draga úr tíðni heilabilunar í framtíðinni.Rannsóknin byggir á gagnagrunni HUNT og var birt í tímaritinu Neurology. Tæplega 9000 einstaklingar voru rannsakaðir og offita mæld bæði með líkamsþyngdarstuðli (BMI) og magni kviðfitu. ÁHÆTTAN SÉRSTAKLEGA TENGD KVIÐFITU Nýdoktorinn Ekaterina Zotcheva stýrði rannsókninni. „Við komumst að því að offita, sérstaklega fita í kringum kviðinn á miðjum aldri, tengist meiri hættu á alzheimer-sjúkdómnum síðar á ævinni. Við höfum mælt þetta bæði með blóðprufum og með klínískum alzheimer-greiningum,“ hefur norska ríkisútvarpið N