Töluverðar umræður um utanvegaakstur á Suðurlandi hafa myndat yfir helgina, til dæmis í Facebook-hópunum Færð á fjöllum og Bakland ferðaþjónustunnar. Í hópunum er ríkjandi sú kenning að ökufantarnir, sem beri ábyrgð á umhverfisspjöllunum, séu hópur franskra ferðamanna. Þeir hafa meðal annars spænt upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.Ökufantarnir eru á Land Rover-jeppum með frönsk bílnúmer.Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir að málið sé á borði lögreglu sem líti það alvarlegum augum.Hvaða leiðir hafið þið til að koma í veg fyrir svona utanvegaakstur?„Það er kannski að það sé varsla víðs vegar um landið og á hálendinu, sem er nú víða. Þegar kemur að sumri þá er landvarsla víða. Svo er spurningin hvernig við náum