Stofna sjálfshjálparhóp fyrir karlmenn á Austurlandi

Til stendur að stofna sjálfshjálparhóp fyrir karlmenn með andlegan vanda á Austurlandi. Stofnandi hópsins segir skort á úrræðum sem miða sérstaklega að körlum í landshlutanum.„Það er ljóst að það er andlegur vandi á meðal karlmanna, ungra sem eldri á svæðinu, sem engin úrræði ná yfir“ segir Sveinn Snorri Sveinsson í viðtali við fréttastofu. Hann er íbúi á Egilsstöðum og stofnandi sjálfshjálparhópsins ásamt Trausta Traustasyni.„Þetta kemur til með að vera grúppa, grúppufundir, þar sem setið er við borð og það er einn stjórnandi og orðið er látið ganga hringinn. Í upphafi fundar er spurt hvort einhver vilji byrja og ef enginn er tilbúinn til þess hefur grúppustjórinn fundinn með eigin tjáningu. Síðan geta hinir spurt. Við tjáum okkur um öll möguleg dýpstu mál og erum ekki hræddir við að tjá
Stofna sjálfshjálparhóp fyrir karlmenn á Austurlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd