Ökumaður mótorhjóls lést í umferðarslysi austan Víkur

Ökumaður mótorhjóls lést í gær eftir árekstur nálægt Vík í Mýrdal. Greint var frá því í gær að mótorhjól og bíll hefðu skollið saman á hringveginum austan Víkur. Ökutækjunum var ekið úr gagnstæðum áttum.Ökumaður mótorhjólsins var úrskurðaður látinn á vettvangi. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu í tilkynningu.„Ásamt lögreglu og tæknideild, sinntu sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Slökkvilið Mýrdalshrepps og þyrla Landhelgisgæslu útkallinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang,“ segir þar.Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn slyssins.
Ökumaður mótorhjóls lést í umferðarslysi austan Víkur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd