Í dag er haldið upp á Jónsmessu á Árbæjarsafni með aðeins öðruvísi sniði en vanalega. Safnið efnir í þriðja sinn til hátíðarhalda í samstarfi við Sænska Félagið á Íslandi með sænsku miðsumarþema sem sum kunna að þekkja sem midsommar.Fólk fór að tínast inn á safnið um hádegisbilið til að taka þátt í að skreyta miðsumarstöngina svokölluðu. Hátíðin hófst formlega klukkan 14 þegar stöngin var reist.„Það sem er týpískt fyrir midsommar er þessi miðsumarstöng. Fólk er líka oft að borða síld og kartöflur, kannski að fá sér snaps ef maður er fullorðinn og líka að syngja svona sænsk snapslög,“ segir Jenny Frederikson sem er í stjórn Sænska Félagsins.Þjóðdansafélag Reykjavíkur kemur einnig að skipulagi hátíðarinnar enda hefð fyrir því að dansa sænska hringdansa í kringum miðsumarstöngina.Bryndís Eir