„Ég tengi rosalega sterkt við KA, myndi segja að það væri mitt uppeldisfélag þrátt fyrir að ég hafi bara verið hér á sumrin. Ég á mjög marga vini hérna og þekki næstum alla," segir Nóel Atli Arnórsson. Nóel spilar í vörn Álaborgar í Danmörku en ræddi við Fótbolta.net á Akureyri í liðinni viku. Hann var í sumarfríi en undirbúningstímabilið í Danmörku er að hefjast. U21 landsliðsmaðurinn var spurður hvort hann myndi velja KA eða Álaborg.