Skikkja, eða ponsjó, Jökuls Júlíussonar úr Kaleo vakti sannarlega athygli á tónleikum á Þingvöllum í gær. Konan sem prjónaði skikkjuna segist strax hafa fengið fjölda fyrirspurna en hún segist hvorki selja flíkur né uppskriftir. Skikkjan er nú komin í eigu Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.