Nú eykst spenna landsmanna enda styttist í sumarleyfin, en á meðan landsmenn undirbúa eigin ferðalög hyggst ríkisstjórnin bjóða þjóðinni í aðra pakkaferð, til Brussel, hinn 29. ágúst. Í bæklingnum er ferðin kynnt sem einstakt tækifæri fyrir Íslendinga. Þar er talað um sæti við glæst hlaðborð reglugerða, lægri vexti, aukinn efnahagslegan stöðugleika og bjartari framtíð fyrir íslensk heimili.