11 líkamsárásir á Akureyri um helgina

Alls voru ellefu líkamsárásir á Akureyri um helgina. Annasamt var hjá lögreglu sökum mannfjölda á Akureyri þar sem Bíladagar fóru fram um helgina.Heimir Heiðarsson varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir engan vistaðan í fangageymslu lögreglu eins og er. Tvær líkamsárásir hafi átt sér stað í nótt þar af ein alvarleg. Brotaþoli hafi hlotið brot á fingri vegna hennar. Í gær höfðu níu líkamsárásir þegar komið á borð lögreglu og hafa þær því alls verið ellefu um helgina.Aðspurður segir Heimir vandræðin ekki einungis tengjast dagskrá Bíladaga.„Ég held að það væri nú kannski ekki sanngjarnt að segja að þetta sé allt saman bíladagatengt, þetta tengist kannski meira bara skemmtanahaldi yfir þessa helgi og vissulega er fleira fólk sem er statt hérna út af bíladögum, út af dagskránni s
11 líkamsárásir á Akureyri um helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd