Fékk 144 þúsund króna sekt fyrir að fara í vikufrí frá köttunum

Matvælastofnun sektaði tvo kattareigendur í apríl fyrir slæma umhirðu dýranna.Annar fór í vikufrí án þess að sjá til þess að læða og kettlingar hennar fengju pössun eða eftirlit. Meðan á þessu stóð fengu kettirnir ekki mat og vatn sem skildi. Eigandinn var sviptur köttunum og sektaður um 144 þúsund krónur.Annar kattaeigandi geymdi ketti sína í búri utandyra þar sem var hvorki fóður né vatn. Kettirnir voru teknir af eigandanum og hann sektaður um 162 þúsund krónur.Köttur var tekinn af þriðja kattareigandanum vegna óviðunandi heimilisaðstæðna og hundar voru teknir af hundaeiganda af sömu ástæðu.Þetta er meðal stjórnvaldsákvarðana sem Matvælastofnun tók í dýravelferðarmálum frá því í febrúar fram í maí.Nautgripabóndi var kærður til lögreglu eftir að Matvælastofnun fékk ábendingu um að hann he
Fékk 144 þúsund króna sekt fyrir að fara í vikufrí frá köttunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd